|
|
09.12.2006 01:42:29 / kristin
jæææja!!! er ekki
kominn tími á nýja færslu... 
Mér sýnist það
svona á öllu...
Ok, hvað hefur
á daga mína drifið síðan 17. október??
Akkurat núna er
ég á kafi í prófalestri, Inngangur að mannfræði þann 13. des og
Rannsóknir í mannfræði þann 21. des.
Hey, já!! Fréttir
– Fréttir: Nýjasta ákvörðunin mín er að halda viku til
hálfsmánaðarleg shake-partý. Þá má fólk sem ég þekki koma í
heimsókn með 1 gest með sér. Þetta er bæði gert til þess að halda
sambandi og til þess að við getum öll kynnst nýju fólki, og til
þess að þið fáið að smakka mína ljúffengu shake-a!!! Síðan spjöllum
við, drekkum te og gæðum okkur á súkkulaði!! Púff, hvað ég hlakka
til! Þetta verður þá seinni part fimmtudaga nema annað sé tekið
fram. Nánar auglýst í hvert skipti á msn-inu
J
sem er bæðevei fyrir
þá sem ekki vita: kristinsaevarsdottir@hotmail.com.
Dagurinn í dag
byrjaði alveg einstaklega skemmtilega!! Ég vaknaði við svaka læti
við hana Hildi, sem ruddist inn í herbergið mitt með látum og söng
afa lagið (góóðan dag, góðan dag, glenz og grín það er mitt fag...
) og dansaði svona
asnalegan sveitadans við!! HAHAHAHAHAHAHA!!!!!  Og ég gerði eitt
sem ég hélt að væri ekki hægt að gera þegar maður væri nývaknaður og
úldinn: ég sprakk úr hlátri!!! Síðan færði hún mér íískaldan og
þykkan sjeeik í rúmmið..MMmmmm... :@
Oh, þessir
yndislegu sambýlingar mínir eru alveg búnir að stjana við mig í
dag. Síðan færði Elfa mér sleikjó og te í rúmið áðan þegar ég var
að læra... haldið að sé lúxus líf!!! 
Annars er nú
lítið að frétta af mér... Það sem er svona helst að vefjast fyrir
mér þessa dagana er: Aðeins ljósara eða aðeins dekkra hár...???
(hehe, ef að vandamál almennings væru svona einföld!!
Hahah!!)
Jæja.. nú er
klukkan orðin meira en eitt og ég þarf víst að sofa
stundum
Svo góða nótt
elskurnar – yfir og út!!
En ekki má gleyma gullmola dagsins:
Ef þú eyðir fimm
mínútum í að kvarta, hefur þú sóað fimm mínútum af lífi þínu.
Ef þú heldur áfram að kvarta líður ekki á löngu þar til þú lendir í
eyðimörk þar sem þér mun svelgjast á rykinu af eigin
eftirsjá.
-Jim Rohn
»
17.10.2006 14:27:48 / kristin
Jæja, best
að setja eins og eina færslu, fólk verður nú að fá fréttir af
The Reykjavík Central Area.. - Afsakið hvað ég skrifa
sjaldan!
Skólinn gengur eins og í sögu,
hélt fyrirlestur í dag með Axel vini mínum um vændi í
Dóminíska Lýðveldinu. Þeir sem vilja vita meira um það hafi
samband. Það sem mér finnst svona áhugaverðast núna er að við
erum að bera saman “villimennina” og okkur vestræna fólkið...
það fyndnasta við það er að við erum öll eins. Fólk talar um
“djös villimennina” en ef við skoðum hliðstæð dæmi: þegar
“villimennirnir” mála sig í framan og bera skrýtna hatta við
ýmsar skemmti-aðstæður og skoðum stemninguna á
fótboltaleik þar sem villtir aðdáendur mála fánann framan í
sig og setja á sig skrýtna/flotta hatta. Það er bara spurning
hverju maður venst, hvað er eðlilegt fyrir manni. Eins á
skemmtistöðunum þegar fólk er að dansa (villimannslega að
sumra mati og jafnvel í glasi ) og þegar frumstæða fólkið
er að fagna dansar það svipað (muniði, eins og í Ace Ventura!
) (mæli með
bókinni Confirmity and Conflict eftir James Spradley
og David W. McCurdy). Þannig að það er mjög áhugavert að pæla
í þessu, hvað við fæðumst nú öll svipuð en mótumst af
mismunandi umhverfi, og þess vegna fordæmum við hvort annað.
Ég er ennþá að reyna að losa mig við mína fordóma en þeir
verða líklegast að einhverju leyti alltaf til staðar. Svo er
líka nauðsynlegt að hafa fordóma fyrst um sinn því annars er
hætta á geðveilu. Þegar mannshugurinn sér eða kynnist
einhverju nýju verður hann að flokka það niður til þess að
hann anni öllum áreitunum í kringum sig. En síðan er
nauðsynlegt, þegar búið er að flokka að fá betri upplýsingar
til að hægt sé að leiðrétta vitlausa flokkun. Þannig er nú
það.. kannski flókin skýring... en doldið merkilegt
J
Annars er það netfundurinn í
kvöld sem er mér svona efst í huga í dag, skemmtilegt hvernig
þessi tæknir er, hægt að vera á fundi, tala, skrifa og allt,
með fólki í næsta húsi og hinumegin á hnettinum! Alltaf jafn
hissa á hvað er hægt að gera margt með nettengingu og
tölvu
J
annars erum við ekki
ennþá komnar með netttengingu við stelpurnar, og erum orðnar
VERULEGA óþolinmóðar. Þannig að þá fer ég til vinar míns í heimsókn
með tölvuna mína. Verð á funinum þar. Oh! Þessi tækni.. Þeir sem
hafa áhuga á að vera með á fundinum kl 21 láti mig vita sem fyrst
svo það verði pláss og til að komast inn á
fundarhólfið.
Annars er veðrið hérna alltaf
svo gott (hmm.. hversu kjaftstopp er maður þegar maður fer að
tala um veðrið.. ) ótrúlegt hvað er ennþá hlýtt miðað við
að kominn sé miður október, og aldrei rok hérna – búum svo
þétt hérna í miðbænum að lítill séns er á öðru en
logni
J
Jæja, ef þú ert
ennþá að lesa.. vá hvað þú ert áhugasö/am(ur) (hehe var þetta ekki
flott?!) um mig!! Ég hvet ykkur endilega til þess að kvitta fyrir
ykkur ef þið eruð að lesa. Gott að vita hvers kyns fólk er hér

Hasta la vista
!!
já, verð ég
ekki að koma með fasta liðinn, mola dagsins.. hm.. nú vandast
valið.. ok, :
eftirlíking
er viðurkenning
meðalmennskunnar á snilldinni
»
13.09.2006 13:18:27 / kristin
»
06.09.2006 13:31:57 / kristin
jæja, þá er hann
byrjaður, skólinn sjálfur...
Ég er enn að rifja upp hvernig nákvæmlega mér datt í hug
að fara í mannfræði.. því þetta er alveg fyrir mig, eins og
kennararnir tali út úr mínu hjarta! ég er semsagt í þremur
námskeiðum, Inngangi í mannfræði, vinnulagi í mannfræði, rannsóknum
í mannfræði og rannsóknum í mannfræði sem er verkefni.
Kennararnir eru upp til hópa fínir, ægilega mannlegir

Annars hef ég verið að átta mig á þessu öllu saman, verið
að vinna, og reynað lesa smá (rosa þykkar bækur á mannfræði-ensku,
hehe )
Svo fer ég að byrja með fjölskyldu-brunchinn og
heilsuklúbbana...
auglýsi það seinna..
kiss kiss kristín :*
(p.s. vitið þið hvað
"kiss" þýðir hjá henni Hildi minni?? Keep It Siple, Stupid! en
vitið þið hvað "kjáninn í sturtunni" þýðir hjá henni?? hint: hún er
viðskiptafræðinemi... hmm... )
»
29.08.2006 22:05:40 / kristin
jæja elskurnar
mínar, þá er ég komin heim,
fyrir þá sem ekki vita!!!
Kom fyrir rúmri viku síðan, hef verið á fullu við
að koma mér fyrir á hverfisgötunni, koma viðskiptunum í gang,
og græja skólann. Það er svo mikil breyting að vera hérna, skrýtið
að geta bara talað íslensku út í eitt, skrýtið að keyra hægra
megin, skrýtið að vera á rauða bílnum mínum, skrýtið að vera ekki
með litlu sætu ormana mína... sakna þeirra svo. En það er
líka gott að sjá allt fólkið mitt, mömmu sín og pabba litla
bróður (eða stóra, hann er orðinn svo fáránlega stór!!) hinn líka
og alla nýju meðlimina sem bæst hafa í hópinn.
Svo byrjar skólinn á
föstudaginn. . . danndanndannDAAANNN!!!
rúlla honum upp með
einari... 
já, ég hef nú verið eitthvað ódugleg við að setja quota
hingað inn. Hildur kom með þennan:
Nærðu hugann á sama
hátt og líkamann,
hugurinn lifir ekki
á draslfæði einu saman.
»
18.08.2006 11:58:09 / kristin
jæja elskurnar mínar, þá er biðin á enda, þið getið hætt
að gráta ykkur í svefn og bjartari tímar eru að ganga í
garð...
Hún ÉG
kemur til landsins á mánudag 
Þá
þarf bara að koma sér fyrir á nýja heimilinu, kaupa allt fyrir
skólann og skipuleggja það og koma viðskiptunum almennilega af
stað, kaupa húsgögn sem þarf að kaupa o.s.frv...
Quoti
dagsins:
Það eru engin
vandamál - bara verkefni.
Eyddu
20% af tímanum í "verkefnið" og 80% af tímanum í
lausnina.
Hafiði góðan dag!

»
09.08.2006 13:02:26 / kristin
»
09.08.2006 12:55:14 / kristin
jæja, nú bíða allir spenntir eftir svaka fréttum af
verslunarhailmannashamhelgardjammi frá UK... en nnejúú,
reyndar fórum við út og skemmtum okkur alveg
konunglega!!
Við
vorum bara með sól og eyjar í hjarta og fórum út, á george
auðvitað, og síðan á hinn alræmda næturklúbb. Þar sem ég dansaði
bara aðeins (nb.fer ekki í skó næstu vikurnar... ) Nei, sko
málið er að hún Unnur (gott að geta kennt henni um, það þekkja
hana svo fáir sem ég þekki lét mig drekka eitthvað sem ég bara
vildi alls ekki drekka!! mjólk eða eitthvað, veit ekki hvað þetta
var, og úr því varð alveg svaka fjör! Það lá við að við færum
(eða aðallega ég) upp á borð að dansa!
en
annars er lítið að frétta, alltaf rosa hlýtt hérna, aðallega mikill
raki, þannig að maður er sveittur út í eitt. Nágrannarnir aðeins
farnir að láta okkur í friði. Og mér er farið að kvíða rosalega
fyrir að fara frá elsku litlu strákunum mínum, oo hvað ég á eftir
að sakna þeirra!! Annars eru þeir búnir að stækka rosalega mikið og
eldast og þroskast. Maður sér alveg dagamun á þeim. Það verður
skrýtið að hafa þá ekki. 
skrifa
meira seinna...
»
01.08.2006 15:31:26 / kristin
oh, jæja
þá, fyst Halla kjaftaði frá þá segi ég ykkur bara alla
söguna!! Kem dauðadrukkin heim öll kvöld, reyni að læðast
upp tröppurnar en hryn á hausin og ropa í leiðinni, er á
eftir öllum strákunum hér í Hailsham og núna vita allir hver
brjálaða Kris er!! 
Hehe, neinei.
En svona í alvöru, þá vorum við Unnur voða duglegar að fara út
á The One And Only The George, hverfispöbbinn. Það var fínt, þangað
til við uppgötvuðum NÆTURklúbbinn á staðnum, þar var meira fjör,
fleira fólk 
En á
George erum við búnar að kynnast fullt af fólki. Fyrst
áttum við (stráka)vina hóp sem við kölluðum Fish´n Chips (FogF
þegar þeir voru nálægt) því þeir vinna allir þar og búa þar
eiginlega líka! en svo hættu þeir að vera hipp og kúl, þá kynntumst
við fleira fólki. Við Unnur vorum nú á tímabili á eftir einhverjum
litlum barþjóni, ári yngri en ég, voða lítill og sætur. En það var
nú kannski vegna þess að það voru ekki margir aðrir... það er nú
ekki mikið stráka-úrval hér í Hailsham-city! En nú er bara
"nunnu-rules"!!! Það er málið. Auðvelt og þægilegt.
Quoti
dagsins:
It´s not what
happens to you that determines
how far you will go
in life; it is how you handle
what happens
to you. -Zig Ziglar.
»
31.07.2006 16:26:23 / kristin
. . . . . . . .
.
The walls we build
around us to keep out the
sadness, also keep
out the joy
-Jim Rohn
»
28.07.2006 17:54:44 / kristin
Fréttir: ég mun flytja aftur niður í bæ úr grafarholtinu þegar
ég kem heim!! 
Mér reyndar líkaði alltaf vel þarna uppi, en saknaði miðbæjarins
alltaf mikið. Ég er líka alltaf þar og keyri mikið á milli. Þannig
að þegar losnaði eitt herbergi hjá henni Hildi, ákvað ég að slá til
og flytja þangað. Get bara ekki beðið! Svo býr hún Elfa líka þar,
þannig að við verðum semsagt þrjár stelpur að legja saman. Það
verður gaman að prufa það!
Og eitt sem ég gleymdi alltaf að skrifa í reportið af staðnum
sem ég bý á núna, gatan sem ég bý í heitir The Holt, síðan bý ég í
Holtinu heima á Íslandi, hehe. Alveg ægilega fyndið! 
»
28.07.2006 17:47:29 / kristin
jæja, þá
er það ákveðið. Ætla í skóla á Íslandi. Er búin að velta
þessu heilmikið fyrir mér, en ætli ég læri bara ekki enskuna
betur seinna. Er nú reyndar búin að venjast henni doldið í
þessa 2 mánuði. En viðskiptaenskan hljómaði nú ægilega
spennandi. En ég er allavega á leiðinni í mannfræði í hí.
langar að fara heim að vinna meira, og gera svo margt sem ég
á eftir að gera. Ég mun nú sakna litlu strákann minna mikið,
ég verð bara að kíkja í heimsókn og fá myndir af þeim til að
fylgjast með litlu englunum mínum.
veit ekki alveg
hvenær ég lendi, myndi giska svona einhverntíman seinnipartinn í
ágúst..
Moli
dagsins:
Take time to be
quiet. -Zig Ziglar.
Ragga minnti
mig á þennann...
»
27.07.2006 13:16:58 / kristin
JÆJA!!!
þá er ég komin
frá Aþenu og ferðin var æði...
voða þægilegur
hiti, kannski 35, en maður fann svo lítið fyrir því því það var
ekki eins mikill raki þar og hér (ég er semsagt orðin sveitt
aftur!!)
Við skoðuðum
Acropolis og nokkrar aðrar byggingar í borginni, ekkert smá
merkilegt hvað þetta er orðið hundgamalt allt, síðan fyrir krist!
og eitt merkilegt sem leigubílstjóri sagði okkur, að það hafi
aldrei sést, né náðst á mynd, að fugl hafi sest á þessar
byggingar... doldið mysterious...
Annars var
ráðstefnan meiri háttar, hún var haldin í OAKA, sömu höll og hún
Sylvia okkar Night söng svo fallega í, með 16.000 mannst í, eins og
á fótboltavelli, svaka fjör. Hann Jim Rohn, Business philosopher
kom og sagði nokkra góða punkta, 14. casa Herbalife var opnað, sem
er svona stuðningsheimili fyrir börn, sem er frábært. Síðan var
farið yfir hvert fyrirtækið er að stefna, hvað það hefur vaxið
síðustu ár, læknar komu og voru með fyrirlestra um rannsóknir á
bætiefnium ofl ofl... Mjög áhugavert.
Síðan hitti ég
allt fólkið frá Íslandi sem ég hef ekki hitt svo lengi og kynntist
líka fullt af útlensku fólki, sá strák sem er í Herbalife, sem
lítur alveg eins út og Elvis... sem ég bæðevei elti en missti
síðan af honum, hehe, aldrei á ævinni hlaupið á eftir strák HAHAHA
langaði bara svo að spyrja hvort þeir væru eitthvað
skyldir...
þannig að það
gerðist margt þessa helgi.
en jæja,
myndirnar hafa ekki látið sjá sig enn, tók e-r eftir
því??
jújú, hún
Kristín tæknivædda kann ekkert á þetta. Mér var sagt að ég þyfti að
hafa þær á annarri síðu... þannig að ef e-r er alveg æstur í að
aðstoða, þá er það allt í lagi!
En, kvóti dagsins:
It´s not what you
know,
it´s what you use
that makes a difference.
»
27.07.2006 13:01:47 / kristin
jæja, þá
er biðin á enda og litla gullið hans óskars og birnu komið í
heiminn!!! ég er alveg að fara að væla yfir þessu, þetta er
svo emotionalt, svona fyrsta systkinabarnið, ég orðin
föðursystir og allt! 
Hef nú reyndar
bara séð myndir af honum, en hann er rosa sætur, ekkert smá
svipsterkur frá þeim báðum. En það gengur vel með hann, mjög vær og
góður er mér sagt. Annars fer ég nú að koma heim svo ég geti nú
barið hann augum.
Ef þið viljið
kíkta betur á hann þá ætla ég að setja link af honum hérna til
hliðar...
jæja, hafðu það
gott litli engill, hlakka til að sjá þig! kiss kiss...
»
16.07.2006 13:15:23 / kristin
úff! verð
nú að farað pakka niður því litla sem ég er með hérna Það
er enginn smá hiti hérna, ég er löngu búin að gleyma því
hvernig er að vera ekki sveitt!
En ég verð nú bara í viku, þannig að
þið megið nú ekki örvænta, ég kem aftur!! En til þess að þið hafið
eitthvað til að hugsa um á meðan, verð ég að setja gullmolann fyrir
vikuna, hann er einn af mínum uppáhalds:
Either you pay the
price of discipline, or you will have to pay the price of
regrets. -Jim Rohn
Þar hafiði það, mikið til í
þessu!
Góðar stundir gott fólk
»
Síður: 1 2
|
Dagatal
| febrúar - 2010 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | | 28 | | Fyrri | Næsti |
|